VIÐ HVERJU MÁ BÚAST?
Þegar þér er boðið í Saladmaster matarboð máttu fyrst og fremst eiga von á góðri skemmtun. Frábær matur og frábært fólk, hvað gæti verið betra?
Saladmaster matarboðin eru einstök leið til að kynnast frábærri tækni til að elda matinn á hollari máta og hvernig má hámarka næringuna í matnum. Þú munt hafa gaman af að taka þátt heima hjá þér, þar sem þú færð að sjá, læra um og bragða á sérstöðu Saladmaster.
Kynningafulltrúar okkar eru vinalegir og elska það sem þau gera. Þau munu elda og ganga frá á meðan þú nýtur matarins. Þau munu sýna þér nýjar aðferðir og deila með þér visku sinni um næringu og mataræði og kynna þér fyrir heimi Saladmaster.
Algengar spurningar
Á hverju er von?
Gómsæt og næringarrík máltíð sem við munum útbúa í þínu eldhúsi. Við komum með mat og áhöld.
Er falinn kostnaður?
Það eru engar kvaðir, nema að borða matinn og hafa gaman. Það eina sem við viljum er að þú lærir eitthvað nýtt um hvernig má elda góða máltíð og viljir mögulega deila því áfram til fjölskyldu og vina.
Hvernig á ég að undirbúa mig?
Það er ekkert sem þú þarft að gera, nema leggja á borð og sjá til þess að gestir mæti. Við eldum, framreiðum og göngum frá. Þú slappar af og nýtur þess að vera gestur í eigin eldhúsi.
Hefur þú áhuga á að halda matarboð?
Flest allir njóta þess að borða. Að njóta með vinum? Jafnvel betra. Ef þú hefur áhuga, þá viljum við bjóða þér að halda Saladmaster matarboð í þínu eigin eldhúsi. Einfalt, ljúffengt og kjörin afsökun til að borða og læra með útvöldum vinum.
Sem gestgjafi útvegar þú eldhús og bíður vinum með heilbrigða matarlist. Við sýnum ykkur svo hvað það er sem gerir Saladmaster að þeirri gjæða vöru sem raun ber vitni.
Gestgjafagjöf
Saladmaster kvörnin er okkar aðalsmerki. Með lítilli fyrirhöfn sker hún, rífur, saxar og sneiðar grænmeti og ávexti. Hún er líka ein margra einstakra hluta sem gætu orðið þínir sem þakklætisvottur frá okkur fyrir að gefa þér tíma fyrir Saladmaster matarboð. Sem gestgjafi er ekki ætlast til mikils af þér en verðlaunin eru borga sig margfalt. Fyrir utan þá staðreind að Saladmaster kvörnin ætti að vera staðalbúnaður í eldhúsi allra matgæðinga.