Forhitið rafmagnspönnuna í 100 gráður. Smyrjið smjöri inn í rafmagnspönnuna. Notaðu kvörnina og skerðu lauk og sveppi með hníf nr. 3
Hrærið egg og rjóma saman, bætið salti, oregano kryddi, lauk og sveppum. Hellið eggjahrærunni í rafmagnspönnuna og hækkið hitann í 145 gráður og rífið ferku basilíkuna yfir. Notið kvörnina til þess að rífa niður mozzarella ostinn og setjið yfir. Setjið lokið á, það er mjög gott að þurrka 2-3 úr lokinu í gegnum eldunartímann.
Eldunartíminn er sirka 25-30 mínútur eða þar til það losnar frá hliðunum.
Verði ykkur að góðu.