BBQ kjúklingur
- 6 kjúklingabitar (bringur, leggir eða læri)
- 1/2 teskeið salt, eða eftir smekk
- 1/2 teskeið hvítlauksduft
- 1/2 teskeið sítrónu pipar eða kreista 1/2 sítrónu
- 1 1/2 bolli BBQ sósa
Forhitið pönnu á miðhita (11″ pannan er góð í þennan kjúklingarétt).
Steikið kjúklinginn í sirka 8-10 mínútur eða þar til kjúklingurinn er brúnn og losnar frá pönnunni. Snúið kjúklingnum og kryddið með salti, hvítlauksdufti og sítrónu pipar. Hellið BBQ sósu yfir kjúklinginn. Þegar Vapo-Valve tikkar, lækkið hitann í minnsta hita á eldavélinni og eldið í sirka 15 – 20 mínútur eða þar til kjúklingurinn er tilbúinn.
Verði ykkur að góðu.