500 g nautahakk

1 laukur, smátt skorinn

3 hvítlauksrif, smátt skorin

1 tsk chilíduft

1 tsk paprikuduft

1 tsk cumin

1 msk nautakraftur, t.d. frá Oscar’s

1 dós niðurskornir tómatar, t.d. frá Hunt’s

2 msk tómatpúrra, t.d. frá Hunt´s

1 tsk sykur

1/2 tsk oregano

1 dós rauðar nýrnabaunir,t.d. frá Rapunzel

sýrður rjómi

nachos flögur

ostur

  1. Skerið laukinn með hníf nr. 2 í kvörninni og steikið laukinn við lágan hita (1/3 hiti á eldavélinni) þar til hann er orðinn mjúkur. Bætið þá hvítlauknum (skorinn með hníf nr. 1 í kvörninni), chilí, papriku og cumin saman við. Hækkið hitann á pottinum (miðhita á eldavélinni), setjið nautahakkið saman við og brúnið það.
  2. Látið nautateninginn saman við 300 ml af heitu vatni og hellið því út í pottinn ásamt tómötum, tómatpúrru, sykri og oregano. Látið malla í um 20 mínútur. Bætið þá nýrnabaunum saman við og látið malla í 10 mínútur til viðbótar. Saltið og piprið og bætið við chilíkryddi ef þurfa þykir.
  3. Mikilvægt er að leyfa réttinum að standa í 10 mínútur áður en hann er borinn fram. Berið fram með sýrðum rjóma, osti (rifinn með hníf 1 í kvörninni) og nachosflögum.

© 2020 H. Jacobsen ehf | Reykjavíkurvegi 66 2. hæð | 220 Hafnarfirði | Kt: 630404-2230 | Vsk nr: 82657 | Sími 555 0350 | Fax 555 0340 | Tölvupóstur eldamennska@eldamennska.is