Plómusósan:

  • 1/2 bolli niðursoðnar plómur
  • 1/2 teskeið niðurrifinn appelsínubörkur (keila nr. 2)
  • 1 kramið rif hvítlaukur
  • 2 matskeiðar sojasósa
  • 2 matskeiðar appelsínusafi
  • 1 teskeið kartöflumjöl eða maizena mjöl

Kjúklingurinn:

  • 3 matskeiðar sojasósa, skipt niður til notkunar
  • 4 matskeiðar kartöflumjöl eða maizena mjöl, skipt niður til notkunar
  • 2 úrbeinaðar kjúklingabringur, skornar í teninga
  • 1/4 bolli vatn
  • Matarolíu sprey úr brúsa
  • 1 matskeið sesam olía
  • 1/2 bolli gulrætur skornar í teninga (keila nr. 2)
  • 1/2 bolli sellerý, skorið í teninga (keila nr. 2)
  • 1/2 bolli laukur, skorinn smátt (keila nr. 2)
  • 1 matskeið niðurrifin engiferrót (keila nr. 1)
  • 8 stór fersk salatblöð (iceberg eða annað sambærilegt)
  1. Blandið saman öllu hráefninu fyrir plómusósuna í lítinn pott. Látið suðuna koma upp á miðhita (tikk), lækkið hitann og leyfið að krauma í 1 mínútu, en hrærið í allan tímann. Kælið.
  2. Í meðalstóra skál, blandið saman 1 matskeið sojasósu og 1 matskeið kartöflu/maizena mjöl, blandið kjúklingnum saman við þangað til að hann er vel þakinn. Leyfið að standa í 10 mínútur.
  3. Blandið saman afganginum af sojasósunni, mjölinu og vatninu og geymið til hliðar.
  4. Í 10 tommu Gourmet pönnunni, snöggsteikið kjúklinginn í matarolíu spreyinu, á miðhita í hærri kantinum í 2-3 mínútur eða þangað til að hann er ekki lengur bleikur í miðjunni. Takið af pönnunni og geymið til hliðar.
  5. Hitið olíu á sömu pönnu. Setjið gulræturnar á pönnuna og snöggsteikið í eina mínútu. Bætið þá við selleríinu, lauknum og engiferrótinni. Snöggsteikið í 2 mínútur, blandið þá kjúklingnum saman við og sojasósu mixtúruna. Eldið áfram en hrærið í á meðan sósan nær suðu og þykknar. Kælið síðan.
  6. Til að bera fram, setjið u.þ.b. 1/4 bolla af mixtúrunni á salatblað. Setjið eina teskeið af plómusósunni ofan á og vefjið salatinu utan um fyllinguna til að loka.

© 2020 H. Jacobsen ehf | Reykjavíkurvegi 66 2. hæð | 220 Hafnarfirði | Kt: 630404-2230 | Vsk nr: 82657 | Sími 555 0350 | Fax 555 0340 | Tölvupóstur eldamennska@eldamennska.is